Sigur í seinni nágrannaslagnum
Keflavík vann sinn fimmta leik í röð í 1. deildinni þegar liðið sigraði seinni nágrannaslag sumarsins við Njarðvík á útvielli. Lokatölurnar urðu 2-0 með mörkum frá Haraldi Guðmundssyni og Magnúsi Þorsteinssyni. Keflavík hefur þar með unnið 5 leiki í röð í deildinni með markatöluna 20-1.
Fyrir leikinn var mínútu þögn til minningar um Vilhjálm Ketilsson, skólastjóra og fyrrum bæjarstjóra Keflavíkur, en hann lést s.l. laugaradag. Leikmenn beggja liða báru einnig sorgarbönd vegna fráfalls Vilhjálms sem lék um árabil með liði ÍBK og vann lengi ötullega fyrir knattspyrnuna í Keflavík, m.a. sem formaður knattspyrnuráðs.
Keflavík byrjaði mun betur í leiknum og Njarðvíkingar björguðu m.a. á línu skoti frá Ólafi Ívari. Strax á 11. mínútu kom fyrsta markið þegar Haraldur skallaði aukaspyrnu Ólafs frá vinstri laglega í fjærhornið. Aðeins 10 mínútum síðar bætti Magnús öðru marki við eftir að hafa fengið frábæra sendingu inn fyrir vörnina frá Hólmari. Magnús slapp einn í gegn og renndi boltanum framhjá Friðriki markverði. Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð og liðin skiptust á um að sækja en tókst ekki að bæta við marki.
Njarðvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur og okkar menn voru fremur værukærir. Eyþór Guðnason fékk tvö dauðafæri en kom boltanum framhjá í bæði skiptin. Keflvíkingar sóttu síðan í sig veðrið og Þórarinn komst einn í gegn eftir frábæran undibúning Magnúsar en Friðrik kom út á móti og varði. Vonbrigði fyrir Tóta sem er í harðri baráttu um markakóngstitil deildarinnar. Heimamenn þurftu síðan að verjast þó nokkurri pressu en seinni hálfleikurinn varð aldrei mjög fjörugur og fjaraði í raun hægt og rólega út. Undir lok leiksins komu þeir Einar Daníelsson og Magnús Þormar inn á sem varamenn og léku báðir sinn fyrsta opinbera leik fyrir Keflavík og er ástæða til þess að óska þeim til hamingju með áfangann. Það vakti nokkra athygli að lítið heyrðist í stuðningsmönnum liðanna en kannski hefur Ljósanóttin daginn áður setið í fólki. Ekki var harkan heldur mikil inn á vellinum en enginn leikmaður fékk að sjá spjald í leiknum.
Njarðvíkurvöllur, 7. september 2003
Njarðvík 0
Keflavík 2 (Haraldur Guðmundsson 11., Magnús Þorsteinsson 22.)
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhannsson (Magnús Þormar 88.) - Guðjón Antoníusson (Einar Daníelsson 79.), Zoran Ljubicic, Haraldur Guðmundsson, Kristján Jóhannsson - Hólmar Örn Rúnarsson, Jónas Guðni Sævarsson, Stefán Gíslason, Ólafur Ívar Jónsson (Scott Ramsay 71.) - Magnús Þorsteinsson, Þórarinn Kristjánsson
Varamenn: Hjörtur Fjeldsted, Hörður Sveinsson
Dómari: Eyjólfur Ólafsson
Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson
Eftirlitsmaður: Guðmundur Stefán Maríasson