Fréttir

Knattspyrna | 24. nóvember 2011

Sigurbergur framlengir

Sigurbergur Elísson hefur framlengt samning sinn við Keflavík og verður hjá félaginu til ársins 2014.  Sigurbergur er 19 ára gamall og leikur sem miðjumaður.  Hann hefur leikið fimm leiki fyrir Keflavík í efstu deild en árið 2007 varð hann yngsti leikmaðurinn til að leika í efstu deild frá upphafi, þá 15 ára gamall.  Sigurbergur kom sterkur inn hjá meistaraflokki í sumar og var auk þess lykilmaður í liði 2. flokks sem varð bikarmeistari.  Það er okkur mikil ánægja að enn einn af okkar ungu og efnilegu leikmönnum hafi ákveðið að semja við félagið enda er Sigurbergur leikmaður sem miklar vonir eru bundnar við.