Fréttir

Sigurbergur framlengir
Knattspyrna | 13. desember 2012

Sigurbergur framlengir

Sigurbergur Elisson hefur framlengt samning sinn við Keflavík til ársloka 2015.  Hann var með samning til ársins 2014 sem hann hefur nú framlengt hann um eitt ár.  Sigurbergur er 20 ára og er tvímælalaust einn efnilegasti leikmaður Keflavíkur.

Sigurbergur lék fyrst með meistaraflokki árið 2007.  Hann lék mjög vel í sumar en þá lék hann 18 leiki í Pepsi-deildinni og skoraði fjögur mörk.  Sigurbergur hefur alls leikið 23 deildarleiki og einn bikarleik fyri Keflavík en auk þess hefur hann leikið með U-17 ára landsliði Íslands.