Fréttir

Sigurbergur og Hilmar til Kína
Knattspyrna | 11. ágúst 2014

Sigurbergur og Hilmar til Kína

Tveir leikmenn Keflavíkur, Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane, eru á leið til Kína með U-15 ára landsliði Íslands.  Þeir félagar eru báðir fæddir árið 1999 og leika með 3. flokki Keflavíkur.  Landsliðið er á leið á Ólympíuleika ungmenna sem fara fram í Nanjing í Kína 16.-28. ágúst.  Íslands er þar í riðli með Hondúras og Perú.  Liðið leikur gegn Hondúras 15. ágúst og Perú þann 18.

Við óskum Sigurbergi, Hilmari og liðsfélögum þeirra góðs gengis í Kína.