Fréttir

Knattspyrna | 12. júlí 2008

Símun framlengir

Símun Samuelsen, hinn snjalli leikmaður okkar Keflvíkinga, hefur framlengt samning sinn við félagið og gildir samningurinn í þrjú ár. Símun gekk til liðs við Keflavík um mitt sumar árið 2005 og vakti strax mikla athygli.  Síðan hefur hann leikið 44 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og skorað í þeim 12 mörk.  Hann hefur einnig leikið 8 bikarleiki og skorað eitt mark en Símun varð bikarmeistari með Keflavík árið 2006.  Auk þessu hefur hann leikið 8 leiki í Evrópukeppnum og skorað í þeim tvö mörk, þar á meðal ógleymanlegt sigurmark gegn danska liðinu Midtjylland í fyrra.  Í fyrra skrapp Símun reyndar til Noregs og spilaði þar með Notodden um tíma.  Hann hefur verið fastamaður í landsliði Færeyja undanfarin ár og er þar kominn með 16 landsleiki.

Það er mikill fengur fyrir Keflavík að hafa tryggt sér starfskrafta Símuns næstu árin og mikil gleðitíðindi fyrir alla sem koma að knattspyrnunni hér.  Símun líður vel í Keflavík og hefur komið sér vel fyrir með eiginkonu sína og barn.

Það voru Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar og Símun sem skrifuðu undir samninginn að viðstöddum Kristjáni þjálfara og stjórnarfólki deildarinnar.

Myndir: Jón Örvar


Símun og Þorsteinn setja nöfn sín á samninginn.


Og svo er að takast í hendur.


Kristján, Símun og Þorsteinn ánægðir með lífið.