Símun gegn Íslandi!
Símun okkar Samuelsen er í færeyska landsliðshópnum sem mætir Íslandi í Kórnum í Kópavogi 22.mars. Frændur okkar senda ungt lið til leiks að þessu sinni og er Símun einn reyndasti leikmaður hópsins þó ungur sé. Hann á 21 landsleik að baki og er þriðji leikjahæsti leikmaður í hópnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig Símun og félögum hans gengur gegn íslenska liðinu í Kópavoginum.