Fréttir

Knattspyrna | 3. nóvember 2005

Simun hjá Viborg

Keflvíkingurinn Simun Samuelssen er til skoðunar hjá danska úrvaldeildarliðinu Viborg.  Simun verður hjá danska liðinu fram að helgi og er væntanlegur til Færeyja nk. sunnudag.  Simun mun ekki gera samning við liðið að þessu sinni en Viborg hefur fylgst með leikmanninum í nokkurn tíma og hyggst fylgjast vel með honum hjá Keflavík næsta sumar með framtíðina í huga.  Simun mun mæta á æfingu hjá Keflavík í lok næstu viku.  Leikmanninum hefur gengið vel hjá Viborg og lætur vel af sér.  Hann hlakkar samt til að koma „heim“ til Keflavíkur en Simun fann sig sérstaklega vel hjá Keflavík eftir að hann gerði samning við liðið í byrjun ágúst.  Í haust hefur hann spilað nokkra landsleiki fyrir Færeyjar og skoraði m.a. mark Færeyinga á móti Ísrael fyrir nokkru.  ási