Sindri, Anton og Fannar í Portúgal
Keflvíkingarnir Sindri Kristinn Ólafsson, Anton Freyr Hauksson og Fannar Orri Sævarsson léku allir með U-17 ára landsliðinu sem hóf leik í milliriðli Evrópukeppninar í Portúgal í gær. Sindri og Anton léku allan leikinn í 0-2 tapi gegn Ukraínu en Fannar kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Lettlandi á föstudag og síðan leikur liðið gegn heimamönnum á mánudag. Það lið sem sigrar í riðlinum fer áfram í úrslitakeppnina. Hægt er að fylgjast með leikjum í riðlinum á vef UEFA.
Við óskum piltunum og félögum þeirra í landsliðinu góðs gengis í keppninni.