Sindri Snær í U-21 árs landsliðinu
Sindri Snær Magnússon hefur verið valinn í U-21 árs landsliðið sem leikur við Svíþjóð á fimmtudaginn. Þar er um að ræða vináttulandsleik sem verður á Norðurálsvellinum á Akranesi.
Það þarf ekki að segja stuðningsmönnum Keflavíkur að Sindri Snær er vel að þessu vali kominn en hann hefur leikið geysilega vel með okkar liði í sumar. Hann hefur áður leikið einn leik með U-21 árs landsliðinu auk leikja með U-19 ára og U-17 ára landsliðunum.