Fréttir

Sindri Snær til Keflavíkur
Knattspyrna | 6. nóvember 2013

Sindri Snær til Keflavíkur

Sindri Snær Magnússon er nýr leikmaður Keflavíkur en hann er genginn í okkar raðir frá Breiðablik.  Hann er þar með fyrsti leikmaðurinn sem Kristján þjáflari fær til liðsins á þessu hausti.  Sindri hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið en hann leikur ýmist sem varnar- eða miðjumaður.  Sindri Snær var í láni hjá Selfossi síðasta sumar og lék þá 21 leik í 1. deildinni og skoraði fjögur mörk en hann á að baki 82 leiki í deild og bikar.  Sindri hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

Við bjóðum Sindra Snæ velkominn í hópinn.