Sjö Keflvíkingar í Futsal-landsliðshópnum
Willum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari í Futsal, hefur valið æfingahóp sem verður við æfingar 28. og 29. desember og fara æfingarnar fram á Ásvöllum. Ísland mun taka þátt í forkeppni Evrópkeppni landsliða í Futsal í janúar á næsta ári en þetta er í fyrsta skiptið sem Ísland sendir landslið til leiks í Futsal. Riðill Íslands verður leikinn á Ásvöllum dagana 21. - 24. janúar.
Alls eru sjö leikmenn Keflavíkur í þessum fyrsta landsliðshópi. Þetta eru þeir Guðmundur Steinarsson, Magnús Þorsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Magnús Þórir Matthíasson, Eyþór Ingi Júlíusson, Sigurður Sævarsson og Bojan Ljubicic. Þess má geta að nýkrýndir Íslandsmeistarar Fjölnis eiga einnig sjö leikmenn í hópnum og sex leikmenn koma frá Víking Ólafsvík og ÍBV.
Sjá nánar á vef KSÍ.
Lið Keflavíkur sem varð Íslandsmeistari 2010.
(Mynd: Jón Örvar)