Skallagrímur - Keflavík á þriðjudag kl. 19:00
Þá er komið að leik í Borgunarbikarnum og þar heimsækja okkar menn Skallagrím í 2. umferð keppninnar. Leikurinn verður á Skallagrímsvelli í Borgarnesi á þriðjudag kl. 19:00. Sigurliðin í þessari umferð keppninnar tryggja sér sæti í 32 liða úrslitum en þar koma úrvalsdeildarliðin inn í keppnina. Dómari leiksins í Borgarnesi verður Karel Fannar Sveinbjörnsson og aðstoðardómarar hans verða Magnús Þór Jónsson og Helgi Sigurðsson.
Keflavík og Skallagrímur hafa einu sinni áður mæst í bikarkeppninni og það fyrir nokkru síðan. Liðin mættust í 1. umferð keppninnar árið 1981 og þá vann okkar lið 7-0 á heimavelli. Ómar Ingvarsson gerði tvö mörk í þeim leik og Einar Ásbjörn Ólafsson, Gísli Eyjólfsson, Steinar Jóhannsson, Óli Þór Magnússon og Sigurður Björgvinsson eitt mark hver.