Fréttir

Knattspyrna | 21. janúar 2005

Spjallsíða stuðningsmanna

Við vekjum athygli á að nokkrir stuðningsmenn Keflavíkurliðsins hafa opnað spjallsíðu um liðið á slóðinni http://blog.central.is/kef-fc/.  Við hvetjum stuðningsmenn til að kíkja á síðuna og taka þátt í umræðu um Keflavíkurliðið og gengi þess.  Það skal tekið fram að síðan er á vegum stuðningsmanna félagsins en tengist ekki Knattspyrnudeild Keflavíkur á nokkurn hátt.  Við óskum hins vegar aðstandendum síðunnar til hamingju með hana og vonum að þar fari fram öflug og málefnaleg skoðanaskipti.