SpKef styður Keflavík
Á samkomu með samstarfsaðilum Knattspyrnudeildar var gengið formlega frá áframhaldandi samvinnu deildarinnar og Sparisjóðsins í Keflavík. Samningurinn er til tveggja ára og Sparisjóðurinn verður því áfram aðalstyrktaraðili knattspyrnunnar í Keflavík eins og hann hefur verið í hartnær tuttugu ár. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að SpKef Sparisjóður skuli sýna stuðning sinn í verki eins og svo mörg undanfarin ár og ekki að efa að samstarfið verði áfram gott og ánægjulegt.
Myndir: Jón Örvar
Einar Hannesson sparisjóðsstjóri og Þorsteinn formaður.
Einar og Þorsteinn ganga frá formsatriðunum.
Magnús Bjarni Baldursson, markaðsstjóri SpKef, kynnir samninginn.