Fréttir

Knattspyrna | 16. júlí 2004

Stefán í bann

Varnartröllið Stefán Gíslason verður í banni gegn FH á heimavelli sunnudaginn 25.júli.  Stefán nældi sér í gult spjald gegn KA og var það hans fjórða í deildinni í ár.  Stefán nær hinsvegar KR-leiknum á sunnudaginn því aganefnd KSÍ  kemur ekki saman fyrr en á þriðjudaginn til að dæma í málinu.