Steinar framlengir
Steinar Örn Ingimundarson, þjálfari meistarflokks kvenna. skrifaði síðastliðinn föstudag undir framlengingu á samningi við félagið út tímabilið 2011. Báðir aðilar höfðu lýst yfir vilja til áframhaldandi samstarfs og hafði samkomulag þar um verið handsalað nokkru áður. Því mun framhald verða á þeirri gríðarlega góðu uppbyggingu sem Steinar hefur staðið að með liðinu á nýliðnu tímabili þar sem mjög góður árangur náðist. Liðið er mjög ungt en uppbyggingin gengur vel og stelpurnar okkar eru orðnar mjög öflugar og styrkjast enn.
Að sögn Andrésar Hjaltasonar formanns kvennaráðs þá höfðu önnur félög falast eftir Steinari, en hann hafði gert munnlegt samkomulag við okkur um framhald og það stóð. Við kunnum að meta fólk sem stendur við orð sín það er ekki sjálfgefið nú á dögum.
Andrés og Steinar skrifa undir samninginn.
(Mynd: Örn Eiríksson)