Stelpurnar úr leik
Kvennaliðið okkar er úr leik í Borgunarbikarnum eftir tap gegn ÍR í 1. umferð keppninnar. Lokatölur urðu 1-3 en leikið var á Nettó-vellinum. Gestirnir voru sterkari í leiknum en það var Sandra Dögg Bjarnadóttir sem gerði þrennu fyrir ÍR. Okkar stúlkur minnkuðu muninn undir lokin en þá skoraði Una Margrét Einarsdóttir.
Næsti leikur er á sunnudaginn en þá er komið að fyrsta leiknum í 1. deildinni. Hann verður gegn Haukum á Schenkervellinum kl. 14:00.
-
Una Margrét Einarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk, þ.e. í deild eða bikar.
-
Ólöf Margrét Arnarsdóttir og Guðný Hanna Sigurðardóttir voru báðar í fyrsta skipti í leikmannahóp í deild eða bikar. Ólöf Margrét kom inn á sem varamaður og lék þar með sinn fyrsta leik.
- Heiða Helgudóttir, Marín Rún Guðmundsdóttir og Una Margrét Einarsdóttir léku allar sinn fyrsta bikarleik með Keflavík.