Stjarnan - Keflavík á laugardag kl. 14:00
Þá styttist í annan endann á Pepsi-deildinni þó ekki sé mikið í húfi hjá okkar liði í lokaumferðunum. Nú er komið að 21. og næstsíðustu umferð deildarinnar en þá heimsækjum við Stjörnuna í Garðabæinn. Leikurinn verður á Samsung-vellinum laugardaginn 26. september og hefst kl. 14:00. Fyrir leikinn er Keflavík í neðsta sæti deildarinnar með sjö stig en Stjarnan er í 6. sæti með 27 stig.
Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín, aðstoðardómarar þeir Adolf Þorberg Andersen og Rúna Kristín Stefánsdóttir og eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Kjartansson.