Stjarnan-Keflavík á mánudag kl 19:15
Mánudaginn 7. júní skreppa okkar menn í Garðabæinn og mæta heimamönnum í 6. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Stjörnuvelli í Garðabæ og hefst kl. 19:15. Fyrir leikinn er Keflavík í efsta sæti deildarinnar með 13 stig en Stjörnumenn í því 9. með 6 stig. Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson og honum til aðstoðar Oddbergur Eiríksson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson. Eftirlitsmaður KSÍ verður Guðmundur Sigurðsson.
Keflavík og Stjarnan hafa leikið 10 leiki í efstu deild á árunum, þann fyrsta árið 1994. Keflavík hefur unnið fjóra leiki en Stjarnan tvo og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli. Markatalan er 14-9 fyrir Keflavík. Þeir Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson hafa allir skorað tvö mörk gegn Stjörnunni í efstu deild en Hörður Sveinsson hefur skorað eitt mark.
Liðin hafa leikið 4 leiki í B-deildinni, árin 1992 og 2003. Keflavík hefur unnið tvo þessara leikja og Stjarnan einn, einum leik lauk með jafntefli. Markatalan er 8-6 fyrir Keflavík. Einn leikmaður Keflavíkur hefur skorað í leikjum liðanna í næstefstu deild en það er Magnús Þorsteinsson.
Keflavík og Stjarnan hafa einu sinni mæst í bikarkeppni KSÍ en það var árið 2008. Þá vann Keflavík 2-1 á heimavelli í 32 liða úrslitum keppninnar. Magnús Þorsteinsson skoraði fyrir Keflavík í þeim leik.
Síðasta sumar varð jafntefli í báðum leikjum liðanna í Pepsi-deildinni. Í fyrri leiknum í Keflavík varð lokastaðan 1-1. Hörður Sveinsson kom Keflavík yfir en Halldór Orri Björnsson jafnaði undir lok leiksins. Seinni leiknum lauk með markalausu jafntefli í Garðabænum.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og Stjörnunni í gegnum árin, m.a. Adolf Sveinsson, Kristinn Guðbrandsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Magnús Þormar.
Úrslit í leikjum Stjörnunnar og Keflavíkur á heimavelli Stjörnumanna hafa orðið þessi:
2009 | A-deild |
Stjarnan- Keflavík |
0-0 | |||
2003 | B-deild |
Stjarnan- Keflavík |
1-1 | Scott Ramsay | ||
2000 | A-deild |
Stjarnan- Keflavík |
1-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
1997 | A-deild |
Stjarnan- Keflavík |
1-3 | Gunnar Oddson Jóhann B. Guðmundsson Haukur Ingi Guðnason | ||
1996 | A-deild |
Stjarnan- Keflavík |
2-1 | Jóhann B. Guðmundsson | ||
1994 | A-deild |
Stjarnan- Keflavík |
1-1 |
Óli Þór Magnússon | ||
1992 | B-deild |
Stjarnan- Keflavík |
2-1 | Árni Vilhjálmsson |