Fréttir

Knattspyrna | 19. júlí 2007

Stórleikur hjá 5. flokki karla á Iðavöllum í dag

Það er nóg um að vera hjá piltunum í 5. flokki.  Þeir leika í dag, fimmtudaginn 19. júlí, sinn þriðja leik á einni viku.  Leikið verður gegn lærisveinum Freys Sverrissonar í Haukum.  Án efa verður um hörkuleiki að ræða þar sem báðum liðum hefur gengið vel í sumar og eru í toppbaráttu í b-riðli Íslandsmótsins.  Leikir A- og C-liða hefjast kl. 16:00 og leikir B- og D-liða kl. 16:50.  Látið endilega sjá ykkur á Iðavöllunum og sýnið Keflavíkurpiltunum með því ykkar stuðning.  Tilvalið að taka upphitun hjá yngri kynslóðinni áður en farið verður á Evrópuleikinn kl. 19:15.  ÁFRAM KEFLAVÍK!

 


Einar Ari Árnason er hér í harðri baráttu í leik gegn Sindra á N1 mótinu fyrr í sumar.
Einar verður í eldlínunni gegn Haukum í dag.