Fréttir

Stórleikur hjá stelpunum á sunnudag
Knattspyrna | 10. september 2016

Stórleikur hjá stelpunum á sunnudag

Það verður sannkallaður stórleikur á Nettó-vellinu á sunnudag þegar Keflavik og Haukar mætast í undanúrslitum 1. deildar kvenna.  Leikurinn hefst kl. 14:00 og við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og styðja stelpurnar okkar sem hafa staðið sig frábærlega í sumar.  Þetta er fyrri leikur liðanna en liðið sem sigrar í þessari viðureign tryggir sér sæti í efstu deild að ári.  Seinni leikurinn verður á heimavelli Hauka á Ásvöllum föstudaginn 23. spetember.

Okkar stúlkur tryggðu sér sæti í undanúrsltim með því að sigra lið Tindastóls í 8 liða úrslitunum.  Fyrri leiknum lauk með 3-2 sigri Keflavíkur á heimavelli okkar og okkar stelpur unnu síðan útileikinn örugglega 3-0.  Í hinni undanúrslitaviðureigininni mætast Grindavík og ÍR.


Byrjunarliðið í útileiknum gegn Tindastóli á dögunum.