Fréttir

Stórleikur í Grindavík
Knattspyrna | 11. ágúst 2016

Stórleikur í Grindavík

Það verður sannkalllaður stórleikur á Grindavíkuvelli í kvöld þegar okkar menn heimsækja Grindvíkinga í Inkasso-deildinni.  Leikurinn byrjar kl. 19:15.  Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Sigurður Ingi Magnússon og eftirlitsmaður KSÍ verður Jón Magnús Guðjónsson.

Fyrir leikinn eru liðin í 2. og 3. sæti deildarinnar og í harðri baráttu um sæti í efstu deild.  Grindavík er í 2. sætinu með 28 stig og Keflavík er í því 3. með 25 stig.  Það verður því allt lagt undir í kvöld og við reiknum auðvitað með því að allir stuðningsmenn mæti í Grindavík í kvöld og styðji okkar menn.