Stórsigur á FH í fyrsta heimaleiknum
Í ár var gerð breyting á fyrirkomulagi Íslandsmótsins í eldri flokki karla. Mótið hefst nú á haustmánuðum og stendur fram í nóvember. Fyrsti leikur Keflavíkur í mótinu var gegn Breiðablik2 í síðustu viku og sigruðu Keflvíkingar 3 - 5.
Á fimmtudag var fyrsti heimaleikur liðsins gegn FH í Reykjaneshöllinni. Keflvíkingar fóru hamförum og skoruðu 15 mörk gegn 3 frá Hafnfirðingum. Liðið fer því vel af stað í mótinu með 2 sigra í tveimur leikjum.
Lið Keflavíkur gegn FH
Efri röð frá vinstri: Gunnar Magnús Jónsson, Friðrik Bergmannsson, Ólafur Þór Gylfason, Ragnar Steinarsson, Sverrir Þór Sverrisson og Margeir Vilhjálmsson.
Neðri röð frá vinstri: Hjörtur Harðarson, Jóhann B. Magnússon, Ingvar Georgsson, Freyr Sverrisson og Jóhann Steinarsson
Markaskorarar Keflavíkur í leiknum gegn FH
Frá vinstri: Hjörtur Harðarson (2), Ólafur Þór Gylfason (2), Friðrik Bergmannsson (2), Gunnar Magnús Jónsson (2), Freyr Sverrisson (2), Sverrir Þór Sverrisson (2), Margeir Vilhjálmsson (2) og Jóhann Steinarsson (1).