Stórsigur á Króknum
Keflavík vann stórsigur á liði Tindastóls í 32 liða úrslitum VISA-bikarsins en leikurinn fór fram á Sauðárkróki í kvöld. Lokatölurnar urðu 9-0 fyrir okkar menn og því nokkuð ljóst að Keflavíkurliðið verður í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslitum keppninnar. Þórarinn Kristjánsson skoraði þrennu og þeir Kristján Jóhannsson og Hólmar Örn Rúnarsson tvö hvor. Magnús Þorsteinsson og Haraldur Guðmundsson settu síðan eitt stykki hvor. Scott Ramsay lék sinn fyrsta leik fyrir Keflavík þegar hann kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.
Við minnum síðan á seinni bikarleik Keflavíkur í þessari umferð en á laugardag mætast U23 ára lið Keflavíkur og úrvalsdeildarlið Grindavíkur á Keflavíkurvelli kl. 14:00.