Stórsigur gegn HK
Keflavík tryggði enn stöðu sína á toppi 1. deildarinnar með 5-1 sigri á HK í Kópavogi í kvöld. Með sigrinum er liðið komið með 18 stig eftir 7 leiki. Þór tapaði nokkuð óvænt fyrir Haukum og með ósigri Víkinga í gær er Keflavík komið með vænlegt forskot á toppi deildarinnar. Víkingur er með 12 stig í öðru sæti og Þór með 11 stig í því þriðja.
Magnús Þorsteinsson kom Keflavík yfir í byrjun leiksins í kvöld, Hólmar Örn Rúnarsson bætti við öðru marki og staðan í hálfleik því 2-0. Þórarinn Kristjánsson skoraði þriðja markið áður en Zoran Panic minnkaði muninn fyrir HK úr víti. Það voru síðan varamennirnir Hörður Sveinsson og Scott Ramsay sem bættu við tveimur mörkum alveg undir lokin en þetta var fyrsta mark Scotty fyrir Keflavík og gaman að sjá að hann er kominn á blað eftir góða frammistöðu í undanförnum leikjum.
Kópavogsvöllur, 27. júní 2003
HK 1 (Zoran Panic 76. víti)
Keflavík 5 (Magnús Þorsteinsson 5., Hólmar Örn Rúnarsson 13., Þórarinn Kristjánsson 62., Scott Ramsay 88., Hörður Sveinsson 90.)
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhannsson - Brynjar Örn Guðmundsson, Zoran Ljubicic, Haraldur Guðmundsson, Kristján Jóhannsson - Hólmar Örn Rúnarsson, Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson, Ólafur Ívar Jónsson (Ingvi Rafn Guðmundsson 88.) - Þórarinn Kristjánsson (Hörður Sveinsson 70.), Magnús Þorsteinsson (Scott Ramsay 76.)
Varamenn: Magnús Þormar, Guðjón Antoníusson
Gult spjald: Haraldur Guðmundsson (56.)
Dómari: Svanlaugur Þorsteinsson
Aðstoðardómarar: Sigurður Þór Þórsson og Sigurður Óli Þórleifsson
Eftirlitsmaður: Ragnar Ingólfsson