Stórsigur í lokaleiknum
Keflavík vann góðan sigur á ÍBV 4-1 í lokaleik okkar manna í Pepsi-deildinni þetta árið. Draumur Eyjamanna um að verða Íslandsmeistari varð að engu. Keflavík spilaði sennilega sinn besta leik í sumar þrátt fyrir mikinn vind og rigningu. Jóhann Birnir Guðmundsson, Ómar Jóhannsson, Brynjar Guðmundsson, Paul McShane og Ómar Karl voru ekki með vegna meiðsla.
Keflavík byrjaði leikinn vel og Hólmar Örn, Arnór Ingvi og Haukur Ingi áttu fín skot að marki. Hörður skoraði fyrsta mark leiksins á 23. mínútu eftir góða sókn og flotta sendingu frá Alen. Eyjamenn ógnuðu aldrei neitt að ráði og Keflavík sýndu fína takta.
Seinni hálfleikur byrjaði með látum. Guðmundur lét mikið að sér kveða og átti m.a. tvö skot rétt framhjá og svo varði Albert með naumindum. Denis Sytnik átti hættulegasta færi ÍBV á 62. mínútu en Lasse varði vel. Um miðjan seinni hálfleikinn koma þeir Magnús Sverrir og Bojan Stefán inn fyrir Hauk Inga og Hörð. Það var svo á 75. mínútu að Arnór Ingvi skoraði gullfallegt mark með hörkuskoti utan teigs sem söng í samskeytunum og staðan orðin 2-0. Þetta er eitt af fallegustu mörkum sumarsins en Arnór Ingvi var þarna að spila í fyrsta skipti í byrjunarliði. Það liðu ekki nema þrjár mínútur þar til ÍBV minnkaði muninn með marki frá Denis Sytnik. Nú var komið fjör í leikinn og Eyjamenn hresstust nokkuð. Hólmar Örn fékk hörkugott færi en Albert varði vel. Á 81. mínútu fengu Eyjamenn vítaspyrnu og Albert markvörðu Sævarsson fór á vítapunktinn en lét Lasse verja frá sér. Það voru svo þeir Magnús Sverrir og Bojan Stefán sem skoruðu tvö mörk í blálokin, á 88. og 90. mínútu. Lokastaða 4-1 í góðum leik okkar manna. Vonbrigði Eyjamanna voru skiljanlega mikil þegar flautað var til leiksloka. Þeir eru búnir að vera góðir í sumar og hafa tryggt sér Evrópusæti.
Keflavíkurliðið spilaði vel eins og það hefur verið að gera í undanförnum leikjum og nú er bara að byggja á þessu fyrir næsta tímabil. Willum Þór var virkilega sáttur með liðið eins og það spilaði þennan leik, eins og síðustu leiki liðsins. Keflavík endaði í 6. sæti deildarinnar.
Enn og aftur mættu stuðningsmenn vel og hvöttu liðið óspart allan leikinn. Gaman að sjá svo marga í stúkunni þrátt fyrir þetta veður.
-
Keflavík vann sinn 23. sigur gegn ÍBV í efstu deild. Eyjamenn hafa sigrað í 26 leikjum og 12 hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 94-102, ÍBV í hag.
-
Keflavík vann annan heimaleik sinn í röð eftir að hafa ekki náð að sigra í fyrstu fimm leikjunum á "nýja" Sparisjóðsvellinum.
-
Sigurinn var sá stærsti hjá Keflavík í sumar og þá hafði liðinu ekki tekist að skora jafnmörg mörk í leik fyrr. Liðið gerði 10 mörk í síðustu þremur leikjum í deildinni en hafði áður skorað 20 mörk í 19 leikjum.
-
Hörður Sveinsson skoraði sitt sjöunda mark í Pepsi-deildinni í sumar og varð markahæsti leikmaður liðsins. Hörður er kominn með 30 mörk fyrir félagið í efstu deild og er í 7. sæti yfir markahæstu leikmenn liðsins frá upphafi. Næst fyrir ofan er Jón Ólafur Jónsson með 31 mark og síðan er nokkuð langt í Þórarinn Kristjánsson með 48 mörk.
-
Magnús Sverrir Þorsteinsson gerði sitt þriðja mark í sumar og sitt 21. mark fyrir Keflavík í efstu deild.
-
Þeir Arnór Ingvi Traustason og Bojan Stefán Ljubicic gerðu báðir sitt fyrsta mark fyrir Keflavík, Arnór í sínum þriðja deildarleik en Bojan lék sinn sjöunda leik í efstu deild.
-
Arnór Ingvi var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu hjá Keflavík eftir að hafa komið tvisvar sinnum inn á sem varamaður. Hann var í hinu sigursæla 3. flokks liði Keflavíkur sem vann öll mót síðasta sumar. Arnór er fyrsti leikmaður þess liðs sem lætur til sín taka með meistaraflokki en örugglega ekki sá síðasti. Þess má geta að hann varð yngsti leikmaður til að skora fyrir Keflavík í efstu deild síðan Þórarinn Kristjánsson skoraði gegn ÍA í síðustu umferðinni árið 1997, þá sextán ára gamall.
-
Keflavík lauk keppni í 6. sæti deildarinnar með 30 stig. Síðasta sumar endaði liðið einnig í 6. sæti, þá með 33 stig.
Fótbolti.net
,,Við spiluðum mjög vel í dag. Við vorum að spila á móti liði sem gat unnið Íslandsmeistaratitil í þessum lek. Ég er stoltur af Keflavíkur liðinu í dag fyrir flotta framgöngu og það var margt jákvætt og ánægjulegt við leik okkar í dag," sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Keflvíkinga eftir sigur liðsins á ÍBV.
,,Fyrri leikurinn var dramatískur á margan hátt. Við vorum við toppbaráttuna þá og hann sat í okkur þannig að það var ekki erfitt að hvetja liðið til átaka í dag."
Arnór Ingvi Traustason, 17 ára gamall, fékk tækifæri á miðjunni í dag og hann skoraði annað markið með flottu langskoti.
,,Arnór Ingvi átti feykilega góðan dag og skoraði fallegt mark í bónus. Hann var í liðinu á réttu forsendum, hann er búnin að vera að koma sterkur upp. Hann hefur ýtt mönnum til hliðar og unnið sér stöðu í liðinu. Það er gaman þegar að ungir menn kveða þannig að sér."
Fréttablaðið / Vísir
Eyjamenn voru komnir með völdin í leiknum og fengu vítaspyrnu á 83. mínútu þegar dæmd var hendi innan teigs. Markvörðurinn Albert Sævarsson steig á punktinn en kollegi hans, Lasse Jörgensen, sá við honum og varði.
Það má með sanni segja að þetta hafi verið vendipunktur leiksins því leikurinn var að spilast með Eyjamönnum á þessum tímapunkti og hefðu þeir náð að jafna metin hefðu áhorfendur fengið rafmagnaða spennu á lokamínútunum. En í staðinn misstu þeir hausinn og varamennirnir Magnús Sverrir Þorsteinsson og Bojan Stefán Ljubicic slátruðu leiknum.
Góður endir á ansi köflóttu tímabili Keflvíkinga. Þeir höfðu ekki að miklu að keppa í dag en mættu greinilega hárrétt gíraðir í leikinn og unnu verðskuldað. Það sáust tár á kvarmi Eyjamanna eftir leik því jafnteflið í Garðabænum gerir það að verkum að þeir hefðu orðið meistarar með sigri.
Lasse 7, Guðjón 7, Alen 6, Bjarni 6, Haraldur 6, Arnór Ingvi 8 (Magnús Þór -), Andri Steinn 7, Hólmar Örn 8, Hörður 7 (Magnús Sverrir 6), Guðmundur 6, Haukur Ingi 7 (Bojan Stefán -).
Morgunblaðið / Mbl.is
Keflvíkingar ætluðu sér svo sannarlega ekki að sjá Íslandsbikarinn á lofti á Sparisjóðsvellinum á laugardaginn og spiluðu annan leikinn í röð gríðarlega fínan bolta. Þeir skoruðu fyrsta markið en eftir það voru gestirnir meira með boltann án þess þó nokkurn tímann að skapa sér hættulegt færi. Skærasta ljós Keflvíkinga var ungur drengur að nafni Arnór Ingvi Traustason sem sýndi fádæma yfirvegun og spilaði strákurinn eins og hann væri hokinn af reynslu. Hann kórónaði svo leik sinn með glæsilegu marki. Stórkostleg tilþrif hjá pilti og annað eins hefur ekki sést vestan Volgubakka í deildinni í ár.
MM: Arnór Ingvi.
M: Guðjón Árni, Haraldur, Andri Steinn, Hólmar Örn, Guðmundur, Haukur Ingi.
Pepsi-deild karla, Sparisjóðsvöllurinn, 25. september 2010
Keflavík 4 (Hörður Sveinsson 23., Arnór Ingvi Traustason 75., Magnús Sverrir Þorsteinsson 88., Bojan Stefán Ljubicic 90.)
ÍBV 1 (Denis Sytnik 76.)
Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hörður Sveinsson (Magnús Sverrir Þorsteinsson 65.), Arnór Ingvi Traustason (Magnús Þór Magnússon 90.), Andri Steinn Birgisson, Hólmar Örn Rúnarsson, Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason (Bojan Stefán Ljubicic 65.)
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson.
Gult spjald: Andri Steinn Birgisson (81.)
Dómari: Jóhannes Valgeirsson.
Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunnarsson og Birkir Sigurðarson.
Varadómari: Valgeir Valgeirsson.
Eftirlitsdómari: Eyjólfur Ólafsson .
Áhorfendur: 1570.
Myndir: Eygló Eyjólfsdóttir.
Þriðja markinu fagnað með stæl.

Haraldur fyrirliði í kröppum dansi.