Stórt tap í Garðabænum
Keflvíkingar fóru ekki neina frægðarför í Garðabæinn á mánudagskvöldið og máttu þola stórt tap 4-0 og sigurinn hjá Stjörnumönnum verðskuldaður. Keflvíkingar voru heillum horfnir og bara í raun óskiljanegt hversu illa liðið spilaði. Lítið sem ekkert er hægt að taka úr þessum leik sem á að kallast jákvætt. Stjörnumenn litu vel út af því að við létum þá líta vel út. Það var bara allur pakkinn sem var að klikka hjá okkur.
Keflavíkurliðið hefur nú viku til að undirbúa sig fyrir næsta leik í Pepsi-deildinni og liðið ásamt þjálfarateyminu á eftir að nota vikuna vel. Keflavík er þó ennþá á toppnum í deildinni og þrír heimaleikir framundan, tveir í deildinni og einn í bikar. Tap í gærkvöldi er enginn dauðadómur og ætti bara að þjappa liðinu saman enda eru allir á því að koma liðinu aftur á sigurbraut. Er það ekki málið, gott fólk?
-
Keflavík og Stjarnan hafa nú leikið 11 leiki í efstu deild. Keflavík hefur unnið fjóra leiki og Stjarnan þrjá en fjórum leikjum hefur nú lokið með jafntefli. Markatalan í leikjum liðanna er nú 14-13 fyrir Keflavík.
-
Þetta var þriðji sigur Stjörnunnar á Keflavík í efstu deild og sá langstærsti. Þeir tveir fyrri komu báðir árið 1996. Þá vann Stjarnan 2-1 og 1-0.
-
Andri Steinn Birgisson lék sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í efstu deild þegar hann kom inn á fyrir Hörð Sveinsson eftir um klukkutíma leik.
-
Áhorfendur á leiknum voru 1.120 og hafa aldrei fleiri fylgst með leikjum þessara liða í Garðabæ. Í fyrra mættu 1.030 á leik liðanna í Garðabænum en mesti áhorfendafjöldi á leik Keflavíkur og Stjörnunnar eru 1.980 sem mættu á leikinn í Keflavík í fyrra.
Fótbolti.net
"Við áttum mjög dapran dag og það gekk ekkert upp hjá okkur sem við reyndum. Þar fyrir utan voru allir á hælunum," sagði Guðmundur Steinarsson framherji Keflavíkur eftir 4-0 tap gegn Stjörnunni í kvöld. ,"Þegar menn koma svoleiðis til leiks er ekki von á góðu. Það þarf að vera á tánum á móti öllum liðunum í þessari deild og sérstaklega þegar liðið er að fara á útivöll.
En hvað var það sem klikkaði?
"Djúsinn var ekki nógu vel blandaður í hádeginu," grínaðist Guðmundur. "Nei, ég veit það ekki. Það er ekki hægt að benda á neitt eitt. Við þurfum bara að fara í smá skoðun og sjá hvað er hægt að laga. Við erum ekkert lélegt lið á einu kvöldi og komum tvíefldir í næsta leik."
Fréttablaðið / Vísir
Þegar upp var staðið á teppinu í gærkvöldi þá gátu gestirnir úr Keflavík þakkað fyrir að sækja boltann bara fjórum sinnum úr netinu hjá sér. Stjörnumenn unnu 4-0 stórsigur, voru miklu betri allan tímann og sýndu enn á ný að það er ekkert grín að mæta á gervigrasið þegar stemmningin í Stjörnuliðinu er eins og hún var í gær.
Árni Freyr 5, Guðjón 4, Alen 4, Bjarni 5, Haraldur 5, Magnús Sverrir 3 (Ómar Karl -), Jóhann Birnir 5, Hólmar Örn 4, Paul 4 (Einar Orri 5), Guðmundur 4, Hörður 3 (Andri Steinn 5).
Morgunblaðið / Mbl.is
Leikurinn í gær var sá sjötti af sex leikjum Stjörnunnar í sumar þar sem fjögur mörk eru skoruð. Þessi sóknarsinnaði og frjálslegi hugsunarháttur var lykillinn að því að leggja að velli hið vel skipulagða lið Keflavíkur sem kannski er andstaðan við Stjörnuna. Þar hafa eins marks sigrar verið látnir duga og "Mourinho-bragurinn" verið nokkuð mikill.
Miðverðir Keflavíkur hafa verið flottir í sumar en voru úti að aka í gær líkt og flestir í liðinu. Kannski spilar inn í eitthvert sambandsleysi við ungan markvörð, Árna Frey Ásgeirsson, en erfitt er fyrir þá sem standa utan vallar að kenna honum um mörkin nema helst það síðasta.
M: Jóhann Birnir.
Pepsi-deild karla, Stjörnu-völlur, 7. júní 2010
Stjarnan 4 (Halldór Orri Björnsson 16., 72. víti, Steinþór Freyr Þorsteinsson 19., Dennis Danry 38.)
Keflavík 0
Keflavík: Árni Freyr Ásgeirsson, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Ómar Karl Sigurðsson 75.), Jóhann Birnir Guðmundsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Paul McShane (Einar Orri Einarsson 60.), Guðmundur Steinarsson, Hörður Sveinsson (Andri Steinn Birgisson 60.).
Varamenn: Bergsteinn Magnússon, Sigurður Gunnar Sævarsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Magnús Þórir Matthíasson.
Gul spjöld: Árni Freyr Ásgeirsson (71.), Haraldur Freyr Guðmundsson (89.)
Dómari: Kristinn Jakobsson.
Aðstoðardómarar: Oddbergur Eiríksson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Eftirlitsdómari: Guðmundur Sigurðsson.
Áhorfendur: 1120.
Okkar menn í erfiðri stöðu.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)