Fréttir

Knattspyrna | 6. janúar 2007

Stuðningsyfirlýsing við Geir Þorsteinsson

Reykjanesbær 6. jan. 2007

Á sameiginlegum fundi knattspyrnudeilda á Suðurnesjum samþykktu formenn og framkvæmdastjórar fyrir hönd stjórna knattspyrnudeilda hvers félags samhljóða eftirfarandi ályktun til stuðnings við Geir Þorsteinsson framkvæmdastóra KSÍ sem næsta formanns KSÍ.

Formenn og framkvæmdastjórar lýsa yfir fullum stuðningi við Geir Þorsteinsson sem næsta formann KSÍ  á þingi KSÍ 10. feb. n.k. og telja mikilvægt að reynsla og þekking sem Geir hefur innan KSÍ og UEFA haldist áfram innan KSÍ og telja mikilvægt að undirstöður KSÍ séu áfram traustar bæði faglega og fjárhagslega.

Fh. stjórnar knattspyrnudeilda félaga á Suðurnesjum

Keflavík:   
Rúnar V. Arnarson              
Jón Örvar Arason

Grindavík:
Jónas Þórhallsson
Ingvar Guðjónsson

Njarðvík:    
Þórður Karlsson                  
Leifur Gunnlaugsson

Reynir:
Sigursveinn B. Jónsson

GG:     
Pálmi H. Ingólfsson

Víðir:
Einar Jón Pálsson

Þróttur Vogum:
Rakel Rut Valdimarsdóttir


Frá vinstri: Rúnar V. Arnarson Keflavík, Jónas Þórhallsson Grindavík, Leifur Gunnlaugsson Njarðvík,
Ingvar Guðjónsson Grindavík, Rakel Rut Valdimarsdóttir Vogum,
Sigursveinn B. Jónsson Sandgerði og Einar Jón Pálsson Garði.
(Mynd: Jón Örvar Arason)