Styrktarsamningar við Knattspyrnudeild
Í maímánuði voru undirritaðir nokkrir styrktarsamningar ýmissa fyrirtækja hér í bæ við Knattspyrnudeildina. Það er alltaf jákvætt þegar bæði ný og gömul fyrirtæki eru tilbúin að standa við bakið á knattspyrnunni hér í bæ. Það er bæði dýrt og kostnaðarsamt að halda úti eins góðu og öflugu liði eins og nú er í efstu deild hér á landi og keppa við stóru liðin í Reykjavík og er Knattspyrnudeildin afskaplega þakklát fyrir allan stuðning, ekki veitir af og meiru til því þetta getur verið erfiður róður. Það er bara staðreynd að landsbyggðarliðin hafa því miður verið að detta út úr deildinni í gegnum tíðina en við í Keflavík erum með metnaðarfullt og frábært lið sem er búið að stimpla sig vel inn í Landsbankadeildina og hefur hampað bikarmeistaratitil þrisvar á 10 ára millibili eða 1997, 2004 og 2006. Við þurfum svo sannarlega á stuðningi og styrkjum að halda svo að þetta sé allt hægt. Rúnar formaður mun glaður mæta með pennann hvert sem er! Geysir Green Energy styrktu deildina um 1 milljón og buðu til hófs þar sem dýrindis kaka og með því voru á boðstólnum þegar Rúnar skrifaði undir samning og tók við ávísun ásamt fulltrúa Þroskahjálpar og Bláa hersins sem einnig fengu styrki.
SG- bílar buðu einnig til hófs í sínum húsakynnum og skrifuðu undir styrktarsamning við Knattspyrnudeildina. Leikmenn karla og kvennaliðs Keflavíkur voru kynntir og einnig nýjir búningar frá PUMA sem liðin munu leika í þetta sumarið. Það var góður hópur fólks sem kom og þeir SG menn buðu upp á snittur og með því og rann það ljúft niður í mannskapinn.
Það fór fram undirritun samninga við DUUS, Matarlyst og Víkurfréttir í K-húsinu þar sem Rúnar formaður var með pennann góða á ferðinni og skrifaði undir styrktarsamninga við fulltrúa þessara fyrirtækja.
Knattspyrnudeildin vill þakka þessum fyrirtækjum og öllum sínum styrktaraðilum fyrir stuðninginn. ÁFRAM KEFLAVÍK!
Myndir: Víkurfréttir o.fl.