Sumaræfingar 8. flokks
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast miðvikudaginn 6. júní.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2012, 2013 og 2014.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:10 – 17:10.
Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á tvö námskeið.
-
Námskeið 1:
- 6. júní – 25. júní (11 æfingar)
-
Námskeið 2:
- 28. júní – 17. júlí (11 æfingar)
- Tvær “aukaæfingar” verða 8. og 9. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 13 æfingar).
- Æfingastaður: Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
- Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Mót: Farið verður á Arion bankamót Víkings, helgina 11. – 12. ágúst (spilað annan hvorn daginn).
Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.
Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is