Sumaræfingar 8. flokks að hefjast
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast miðvikudaginn 8. júní.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2010, 2011 og 2012.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15.
Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.
-
Námskeið 1:
- 8. júní – 28. júní (12 æfingar)
-
Námskeið 2:
- 4. júlí – 21. júlí (12 æfingar)
- Tvær “aukaæfingar” verða 10. og 11. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 14 æfingar).
- Æfingastaður: Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
- Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Mót: Farið verður á frábært Arion bankamót Víkings, helgina 13. – 14. ágúst (spilað annan hvorn daginn).
Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.
Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is
SJÁUMST HRESS Í FÓTBOLTA Í SUMAR !!