Fréttir

Sumaræfingar 8. flokks, skráning hafin
Knattspyrna | 18. maí 2017

Sumaræfingar 8. flokks, skráning hafin

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast miðvikudaginn 7. júní.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2011, 2012 og 2013.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15.

Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.

  • Námskeið 1:
    • 7. júní – 27. júní (12 æfingar)
  • Námskeið 2:
    • 3. júlí – 20. júlí (12 æfingar)
  • Tvær “aukaæfingar” verða 9. og 10. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 14 æfingar).
  • Æfingastaður:  Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
  • Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Mót: Farið verður á frábært Arion bankamót Víkings, helgina 12. – 13. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is

SJÁUMST HRESS Í FÓTBOLTA Í SUMAR !!