Fréttir

Knattspyrna | 25. maí 2011

Sumaræfingar að hefjast hjá 8. flokki

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast þriðjudaginn 31. maí.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns.
Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2005, 2006 og 2007.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15
Æfingastaður:  Æfingasvæðið að Iðavöllum 
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.
          - Námskeið 1:  31. maí – 28. júní (11 æfingar)
          - Námskeið 2:  4. júlí – 26. júlí (11 æfingar)
Verð: 5000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 3000 kr.
Systkinaafsláttur er veittur; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Skráning og allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is