Sumarnámskeið 2 hjá 8. flokki
Sumarnámskeið 2 hjá 8. flokki Keflavíkur hefst mánudaginn 4. júlí.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2010, 2011 og 2012.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15.
Æfingatímabil:
- 4. júlí - 21. júlí (12 æfingar)
- Tvær “aukaæfingar” verða 10. og 11. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 14 æfingar).
- Æfingastaður: Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
- Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef námskeið 1 var sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Mót: Farið verður á frábært Arion bankamót Víkings, helgina 13. – 14. ágúst (spilað annan hvorn daginn).
Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.
Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is