Fréttir

Sveindís með tvö mörk í góðum sigri á FH
Knattspyrna | 15. desember 2016

Sveindís með tvö mörk í góðum sigri á FH

Keflavík lék æfingaleik gegn Pepsi deildarliði FH í Reykjaneshöll á miðvikudaginn. Stelpurnar sýndu flottan leik og skiluðu sannfærandi 3-0 sigri. Sveindís Jane Jónsdóttir heldur uppteknum hætti og skoraði tvö fyrstu mörkin það fyrra á 13. mínútu og það síðara á 19. mínútu. Það var svo Birgitta Hallgrímsdóttir sem innsiglaði sigurinn með góðu skallamarki eftir frábæra sókn á 66 mínútu og þar við sat.
Þess má geta að í marki Keflavíkur lék 16 ára stúlka úr Haukum, Katrín Hanna Hauksdóttir og átti hún góðan leik.

Lið Keflavíkur í leiknum:
Katrín Hanna Hauksdóttir (m) - Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, Eydís Ösp Haraldsdóttir (Guðrún Lísa Ingþórsdóttir), Brynja Pálmadóttir, Íris Una Þórðardóttir (Berta Svansdóttir) - Ljiridona Osmani (Eva Lind Daníelsdóttir), Viktoría Sól Sævarsdóttir (Jóney Ósk Sigurjónsdóttir) - Margrét Hulda Þorsteinsdóttir (Birgitta Hallgrímsdóttir), Katla María Þórðardóttir (Ólöf Stefánsdóttir), Sólveig Lind Magnúsdóttir (Björk Lind Snorradóttir), Sveindís Jane Jónsdóttir (Gná Elíasdóttir).


Sveindís Jane skoraði tvö mörk gegn FH.


Birgitta Hallgrímsdóttir skoraði þriðja mark leiksins gegn FH.