SVONA GERUM VIÐ EKKI
Kæru stuðningsmenn,
Þrátt fyrir ljótt tap okkar manna gegn KR á sunnudag þá gerum við ekki svona eins og einn stuðningsmaður okkar gerði að henda flösku inn á völlinn og annar henti flösku í átt að KR-ingum en slíkur gjörningur getur haft með sér slæmar afleiðingar fyrir Knattspyrnudeildina. Það er skiljanlegt að menn séu svekktir þegar liðið okkar er að tapa en þá skulum við líka frekar syngja og hvetja okkar menn en gera svona hluti. Það eru ekki margir leikir sem Keflavík tapar og þegar það gerist skulum við taka því eins og sannir stuðningsmenn. Svo ég hvet þá sem hér eiga hlut að máli að hugsa næst um að hrópa áfram Keflavík frekar en kasta frá sér reiðinni.
Áfram Keflavík
Þorsteinn Magnússon
formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur