Takk fyrir 2014!
Við þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða og óskum stuðningsmönnum velfarnaðar á nýju ári. Knattspyrnudeild vill þakka stuðningsmönnum okkar fyrir góðan stuðning á árinu og samstarfs- og styrkarðilum deildarinnar fyrir samvinnuna.
Árið 2014 var að hluta tileinkað fyrstu Íslandsmeisturum Keflavíkur en fimmtíu ár voru liðin frá fyrsta meistaratitli félagsins árið 1964. Leikmenn fyrsta meistaraliðsins voru m.a. heiðursgesti á bikarúrslitaleiknum ásamt bikarmeisturum KR árið 1964 eins og sjá má á myndunum hér að neðan. Stjórn Knattspyrnudeildar vill þakka leikmönnum 1964-liðsins sérstaklega fyrir sinn þátt á liðnu ári og ánægjulega samveru.
Gleðilegt ár!