Fréttir

Knattspyrna | 30. júní 2010

Takk fyrir okkur!

Á sunnudaginn verður nýr og betri Sparisjóðsvöllur tekinn í notkun eftir gagngerar endurbætur.  Þar verður mikið um dýrðir enda langþráðum áfanga náð og ekki skemmir fyrir að fá Íslandsmeistara FH í heimsókn á þessum tímamótum.  Það sem af er sumri höfum við hins vegar notið einstakrar gestrisni nágranna okkar en meistaraflokkur karla hefur leikið heimaleiki sína á Njarðtaksvellinum í Njarðvík.  Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Knattspyrnudeild UMFN og starfsfólki vallarins kærlega fyrir gestrisnina og ánægjulegt samstarf í sumar.  Við þökkum fyrir okkur og óskum Njarðvíkingum góðs gengis innan og utan vallar það sem eftir er sumars.


Á þessari skemmtilegu mynd frá Víkurfréttum fagna okkar menn marki á Njarðtaksvellinum.