Tap á Skaganum
Keflavík tapaði fyrir liði ÍA í Landsbankadeildinni á Akranesi í gærkvöldi, 1-2. Það var Þórarinn Kristjánsson sem kom okkar mönnum yfir mað marki úr vítaspyrnu á 19. mínútu, hans 9. mark í deildinni í sumar. Í seinni hálfleik skoruðu heimamenn síðan tvö mörk; Helgi Pétur Magnússon jafnaði á 60. mínútu og Reynir Leósson skoraði svo sigurmarkið á þeirri 84.
Þrátt fyrir tapið höldum við 5. sætinu í deildinni en pakkinn fyrir neðan er orðinn þéttur og nú eru 4 stig í liði ÍA sem er í 4. sætinu. Það er ljóst að deildin skiptist þar; liðin fyrir ofan verða í toppbaráttunni í síðustu tveimur umferðunum en önnur í fallbaráttu. Keflavíkurliðið vantar enn eitt stig til að tryggja endanlega stöðu sína í deildinni en næsti leikur er Suðurnesjaslagur gegn Grindvíkingum 12. september.