Fréttir

Knattspyrna | 4. apríl 2005

Tap fyrir FH

FH sigraði Keflavík 3-0 í Deildarbikarnum í Reykjaneshöll á sunnudagskvöldið í annari tilraun þessara liða til að ljúka leiknum en leikurinn taldist heimaleikur FH.  Fyrri leikurinn var flautaður af í hálfleik.  Keflavík hafði frumkvæðið í leiknum fyrstu 35 mínúturnar og voru okkar strákar óheppnir að skora ekki mark á þeim tíma.  Eftir að FH-ingar skoruðu frekar ódýrt mark á 35. mínútu var eins og okkar menn misstu móðinn og FH-ingar höfðu frumkvæðið sem eftir lifði.  Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá fyrri leikjum og greinilegt að þjálfarinn er að reyna ýmsar uppstillingar.

Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar í markinu, Guðjón Árni, Gestur, Ásgrímur, Þorsteinn, Sigþór, Ingvi Rafn, Atli Rúnar, Jónas, Kjartan og Guðmundur Steinarsson.