Fréttir

Knattspyrna | 22. september 2010

Tap gegn FH í átta marka leik

Keflavík tapaði fyrir FH 5-3 í 21. umferð Pepsi-deildarinnar en leikið var á Kaplakrikavellinum á sunnudag. Leikurinn var fjörugur frá upphafi til enda og alls átta mörk skoruð.

Það var strax á 5. mínútu sem FH skoraði fyrsta mark leiksins þegar Atli Viðar Björnsson skoraði af stuttu færi.  Haukur Ingi jafnaði á 10. mínútu þegar hann fékk stungusendingu inn fyrir vörn FH og skoraði örugglega framhjá Gunnleifi í markinu.  Það var svo Bjarni Hólm sem kom Keflavík yfir á 18. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir aukaspyrnu Guðmundar.  FH skoraði síðan tvö til viðbótar í fyrri hálfleik, fyrst Björn Daníel Sverrisson og Atli Viðar bætti svo við þriðja marki FH og staðan í hálfleik var 3-2.

Seinni hálfleikur var ekki gamall þegar Brynjar Örn jafnaði með góðu marki á 51. mínútu.  Liðin sóttu á víxl og mikið fjör í leiknum.  Heimamenn bættu svo við marki og þar var Björn Daníel aftur á ferðinni og FH komið aftur yfir.  Matthías Vilhjálmsson skoraði svo fimmta mark FH úr víti á 75. mínútu og innsiglaði 5-3 sigur FH-inga.

Við verðum að minnast á okkar frábæru stuðningsmenn sem mættu vel á völlinn og létu vel heyra í sér.

Síðasti leikurinn þetta árið verður á Sparisjóðsvellinum gegn ÍBV á laugardag 25. september kl. 14:00.

  • FH-ingar unnu 18. sigur sinn í leikjum liðanna.  Keflavík hefur unnið 10 leiki og jafntefli hefur orðið í 14 leikjum.  Markatalan er 57-67, FH í vil.
      
  • Aldrei hafa fleiri mörk verið skoruð í leik þessara liða.  Áður hafði mesti markaleikur liðanna verið 6-1 sigur Keflavíkur á heimavelli árið 1976.  Ólafur Júlíusson og Friðrik Ragnarsson skoruðu báðir tvö mörk í þeim leik og Rúnar Georgsson og Þórir Sigfússon eitt hvor.
      
  • Við Keflvíkingar höfum ekki riðið feitum hesti frá viðureignum okkar við FH á Kaplakrikavelli síðustu árin, já og áratugina.  Síðasti sigur okkar þar í efstu deild kom árið 1980 þegar Sigurjón Sveinsson og Þórir Sigfússon skoruðu í 2-1 sigri.  Síðan hafa liðin leikið 15 leiki í efstu deild í Kaplakrika; FH hefur unnið tíu leiki og fimm hefur lokið með jafntefli.  Reyndar kom einn bikarsigur á Kaplakrika árið 1986 þegar Freyr Sverrisson skoraði eina mark leiksins í 8 liða úrslitum bikarsins.
      
  • Guðmundur Steinarsson lék sinn 200. leik fyrir Keflavík í efstu deild.  Hann er aðeins annar leikmaðurinn í sögu félagsins til að ná þeim áfanga en Sigurður Björgvinsson á að baki 214 leiki fyrir félagið í efstu deild.  Guðmundur lék sinn fyrsta leik 29. ágúst árið 1996 þegar hann kom inn á sem varamaður í heimaleik gegn Val.  Guðmundur hefur skorað 70 mörk í þessum 200 leikjum en hann hefur einnig leikið 11 fyrir Fram í efstu deild auk þess að leika með KA, Brönshöj í Danmörku og Vaduz í Liechtenstein.
      
  • Brynjar Örn skoraði sitt þriðja mark í sumar og sitt fjórða fyrir Keflavík í efstu deild.  Haukur Ingi og Bjarni Hólm skoruðu báðir sitt fyrsta mark í sumar.  Mark Bjarna var annað mark hans fyrir Keflavík í efstu deild.  Haukur Ingi skoraði 26. mark sitt fyrir Keflavík í efstu deild og hann er nú í 9.-10 sæti yfir markahæstu leikmenn Keflavíkur frá upphafi ásamt Ólafi Júlíussyni.
               

Fótbolti.net
,,Þetta var náttúrlega bara hörkuleikur og mikið af mörkum og örugglega skemmtilegt fyrir áhorfendur en ef ég á að segja alveg eins og er að þá hélt ég að við myndum ná stigi þegar við náðum að jafna 3 -3 en á móti klassaliði eins og FH að þá megum við ekki bjóða upp á tækifæri og varnarmistök eins og gerast í dag " sagði Haukur Ingi Guðnason leikmaður Keflavíkur sem var þeirra besti maður í dag í 5 - 3 tapi en Haukur Ingi skoraði tvö mörk fyrir Keflavíkurliðið en Haukur hefur glímt við erfið meiðsli í sumar.

,,Tilfinningin var ágæt,ég var reyndar þreyttur í líkamanum eftir að hafa spilað tvo leiki núna í þessari viku. Þetta er þriðji leikurinn á einni viku og ég var svona soldið stífur og það er alltaf ágætt að ná að skora en alltaf svartur blettur þegar maður nær ekki stigi út úr því".
 
Fréttablaðið / Vísir
Enn er von hjá FH-ingum eftir að þeir unnu 5-3 sigur á Keflavík í leik sem fer í flokk með þeim skemmtilegri þetta sumarið. Leikurinn verður þó ekki notaður í kennslu í varnarleik í framtíðinni.
Fyrirtaks skemmtun, nóg af mörkum og mikið fjör í Krikanum í kvöld.
Lasse 5, Guðjón 4, Alen 3, Bjarni 6, Haraldur 5, Andri Steinn 4 (Jóhann Birnir 4),  Hólmar Örn 6, Hörður 4, Brynjar 5, Guðmundur 4 (Magnús Þórir -), Haukur Ingi  8 (Magnús Sverrir -).

Morgunblaðið / Mbl.is
Bæði FH og Keflavík eiga hrós skilið fyrir að bjóða áhorfendum upp á "blússandi sóknarbolta" í gær. Keflvíkingar nýttu færin sín eins vel og hugsast getur og Haukur Ingi Guðnason nýttist liðinu vel með hraða sínum og áræði. Varnarleikur Keflvíkinga var hinsvegar alls ekki nógu góður og fengu FH-ingar tíma og pláss til þess að athafna sig á miðsvæðinu og úti á báðum köntum.
Keflavíkingar nýttu styrkleika sína vel í gær í sóknarleiknum en varnarleikur liðsins var ekki góður. Leikmenn liðsins börðust hinsvegar af miklum krafti þrátt fyrir mótlætið. Og án efa munu leikmenn Keflvíkinga halda áfram með sama hugarfari í lokaumferðinni gegn ÍBV.
M: Guðjón Árni, Brynjar Örn, Hólmar Örn, Haukur Ingi.
 

Pepsi-deild karla, Kaplakrikavöllur, 19. september 2010
FH 5
(Atli Viðar Björnsson  5., 44., Björn Daníel Sverrisson 25., 64., Matthías Vilhjálmsson 73. víti)
Keflavík 3 (Haukur Ingi Guðnason 10., Bjarni Hólm Aðalsteinsson 17., Brynjar Örn Guðmundsson 51.)

Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hörður Sveinsson, Andri Steinn Birgisson (Jóhann Birnir Guðmundsson 68.), Hólmar Örn Rúnarsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson (Magnús Þórir Matthíasson 78.), Haukur Ingi Guðnason (Magnús Sverrir Þorsteinsson 62.)
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Arnór Ingvi Traustason, Bojan Stefán Ljubicic.
Gul spjöld: Bjarni Hólm Aðalsteinsson (31.), Andri Steinn Birgisson (48.)

Dómari: Gunnar Jarl Jónsson.
Aðstoðardómarar: Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Frosti Viðar Gunnarsson.
Eftirlitsdómari: Jón Sigurjónsson.
Áhorfendur: 1858.

Myndir: Eygló Eyjólfsdóttir.



Það fór vel á með mönnum fyrir leik.
 


Haukur Ingi skorar fyrsta mark Keflavíkur.