Tap hjá stelpunum í úrslitaleiknum
Úrslitaleikurinn í Lengjubikar kvenna fór fram á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær þar sem Keflavík sótti Hauka heim. Keflavíkurstúlkur, sem hafa verið að spila mjög vel undanfarið, náðu sér aldrei á strik í leiknum. Haukar náðu forystunni á 16 mínútu og bættu við öðru marki á 52. mínútu og þar við sat. Leikurinn fer í reynslubankann hjá ungu liði Keflavíkur. Næsti leikur hjá stelpunum er í 1. umferð Borgunarbikarsins gegn Skínanda. Leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ mánudaginn 9. maí.