Fréttir

Knattspyrna | 1. júní 2011

Tap í Árbænum

Keflavík tapaði sínum öðrum leik í röð í Pepsi-deildinni þegar okkar menn heimsóttu Fylki í Árbæinn og fóru heim með 1-2 tap á bakinu.  Enn einu sinni réðust úrslitin á síðustu stundu og að þessu sinni voru það Fylkismenn sem gerðu sigurmarkið á lokamínútunni.  Jóhann Birnir Guðmundsson kom Keflavík yfir strax í byrjun leiks en Ingimundur Níels Óskarsson tryggði heimamönnum sigurinn með tveimur mörkum.  Eftir leikinn er Keflavík í 5.-7. sæti deildarinnar með 8 stig.

Næsti leikur er útileikur gegn Haukum í Valitor-bikarnum mánudaginn 20. júní kl. 19:15.

  • Leikurinn var 27. leikur Keflavíkur og Fylkis í efstu deild.  Þetta var 8. sigur Fylkis, Keflavík hefur unnið 11 leiki en átta hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 34-38 fyrir Fylki.
          
  • Jóhann Birnir er orðinn markahæsti leikmaður Keflavíkur í sumar með þrjú mörk.  Markið var 24. mark hans fyrir Keflavík í efstu deild og hann er nú í 11.-13. sæti yfir markahæstu leikmenn félagsins ásamt Jóni Ólafi Jónssyni og Einari Ásbirni Ólafssyni.  Jóhann er að nálgast topp 10 listann en Haukur Ingi Guðnason og Ólafur Júlíusson eru þar í 9.-10. sæti með 26 mörk.
        
  • Viktor Smári Hafsteinsson kom inn í byrjunarliðið og lék sinn fyrsta leik í efstu deild en Viktor er 19 ára.
     

Fótbolti.net
Ansi mikilvægur sigur hjá Árbæjarliðinu. Liðið var mjög jafnt í kvöld. Andrés Már Jóhannesson var frábær í fyrri hálfleik en lét minna að sér kveða í þeim síðari. Maður leiksins er þó alltaf hetjan Ingimundur Níels.

Keflvíkingum gekk illa í sóknaraðgerðum sínum í kvöld og virtist skorta hugmyndaflug fram á við stærstan hluta leiksins. Eftir góða byrjun gekk þeim illa að finna leið framhjá heimamönnum.

Fréttablaðið / Vísir
Willum Þór Þórsson segir að það hafi verið ansi súrt að þurfa að sætta sig við tap í Árbænum í kvöld.
„Við vorum að berjast alveg eins og þeir og þetta var því afskaplega sárt. Við spiluðum þó betur í fyrri hálfleik en í þeim seinni og þetta bara datt fyrir þá í þetta skiptið. Það er auðvitað hundfúlt.“

Hann segir erfitt að koma auga á af hverju sínir menn hafi gefið eftir í seinni hálfleik.
„Þetta er mjög tvö áþekk lið með sterka einstaklinga. Mér fannst við síga aðeins of mikið í seinni hálfleik og vera full ákafir á boltann. Ekki nægilega mikil yfirvegun hjá leikmönnum til að skapa færi. En það vantaði ekki að menn voru á fullu allan tímann.“

Ómar 6, Viktor Smári 6, Goran 5, Adam 6, Haraldur 6, Einar Orri 5, Andri Steinn 6, Jóhann Birnir 6 (Bojan -), Hilmar Geir 4, Magnús Sverrir 4 (Magnús Þórir  5), Guðmundur 6.

Morgunblaðið / Mbl.is
Ingimundur, markaskorari Fylkis í leiknum, skoraði sitt þriðja mark í deildinni þegar hann skoraði annað mark sitt í leiknum. „Hann mætti skora tvö mörk í hverjum leik fyrir mér, ef því væri að skipta," sagði Ólafur og brosti út í annað.

Með sigrinum komst Fylkir í fjórða sæti deildarinnar en þeir eru með 10 stig. Þetta var hinsvegar annað tap Keflvíkinga í röð í deildinni. Þeir eru nú með 8 stig um miðja deild.
M: Einar Orri, Jóhann Birnir, Guðmundur.

Víkurfréttir
Keflvíkingar máttu sætta sig við 2-1 tap gegn Fylkismönnum í sjöttu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld en leikurinn fór fram í Árbænum. Keflvíkingar byrjuðu þó af krafti og Jóhann B. Guðmundsson skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik en Hilmar Geir Eiðsson og Guðmundur Steinarsson áttu þátt í undirbúningi marksins en Jóhann kláraði vel. 20 mínútum síðar skoraði Ingimundur Níels Óskarsson fyrir heimamenn í Fylki og þannig var staða í leikhlé, 1-1 og leikurinn fjörugur.

Annað var uppi á teningnum í síðari hálfleik þar sem lítið markvert gerðist þar til í blálokin þegar Ingimundur Níels skoraði sitt annað mark fyrir Fylki og tryggir þeim stigin þrjú.

 
Pepsi-deild karla, Fylkisvöllur, 30. maí 2011
Fylkir 2
(Ingimundur Níels Óskarsson 23., 90.)
Keflavík 1 (Jóhann Birnir Guðmundsson 3)

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Goran Jovanovski, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hilmar Geir Eiðsson, Jóhann Birnir Guðmundsson (Bojan Stefán Ljubicic 83.), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Magnús Þórir Matthíasson 63), Guðmundur Steinarsson. 
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Þór Magnússon, Arnór Ingvi Traustason, Theodór Guðni Halldórsson.

Dómari: Erlendur Eiríksson.
Aðstoðardómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon.
Eftirlitsdómari: Björn Guðbjörnsson.
Áhorfendur: 1.504.




Jóhann kemur Keflavík yfir en það dugði ekki til að þessu sinni.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)