Tap í Firðinum
Keflavík tapaði 3-0 fyrir FH þegar liðin mættust í 18. umferð Pepsi-deildarinnar en leikið var á heimavelli Hafnfirðinga í Kaplakrika. Staðan í hálfleik var markalaus en í seinni hálfleik fékk Jóhann Birnir Guðmundsson að líta rauða spjaldið. Í kjölfarið skoruðu heimamenn þrjú mörk, það fyrsta gerði Atli Guðnason, það næsta var sjálfsmark og Viktor Örn Guðmundsson gerði svo þriðja markið í blálokin.
Eftir leikinn er Keflavík í 7.-8. sæti deildarinnar með 24 stig. Næsti leikur er heimaleikur gegn Fram sunnudaginn 16. september kl. 17:00.
Myndir: Jón Örvar