Fréttir

Knattspyrna | 24. maí 2006

Tap í miklum rokleik

Það var ekki mikil virðing sem "Kári " sýndi leikmönnum Keflavíkur og Breiðabliks í gær þegar liðin áttust við í annarri umferð Landsbankadeildar kvenna. Hávaðarok og mikill kuldi mætti leikmönnum þegar þær gengu til leiks og þeir áhorfendur sem lögðu
leið sína hafa væntanlega ekki klætt sig jafn vel þetta árið.

Leikurinn hófst með mikilli ákefð gestanna sem léku með sterkann vind í bakið. Blikar reyndu að nýta sér sína fljótu framherja en gekk illa þar sem vindurinn kom í veg fyrir það oftar en ekki. Keflavíkurliðið hélt vel og var fín vinnsla í liðinu. Þó gekk liðunum illa að halda boltanum innan liðsins, þar sem "Kári" spilaði stóran þátt í því. Á 18. mínutu er dæmd vítaspyrna á Keflavíkurliðið og skoraði Edda Garðarsdóttir úr henni. Verður að segjast eins og er að Blikar voru ekki að skapa sér nein væri. Um miðbik hálfleiks komst Nína Ósk Kristinsdóttir ein inn fyrir vörn Blika en skot hennar fór framhjá. Á  32. mínútu komast Blikar upp vinstramegin og eiga fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Erna Sigurðardóttir stakk sér fram fyrir varnarmenn Keflavíkur og skoraði. Þarna svaf Keflavíkurliðið á verðinum. Lokaorðið í fyrri hálfleik, á 40 mínútu átti Gréta Mjöll Samúelsdóttir þegar hún lúrði fyrir innan vörn Keflavíkurliðsins og nýtti sér varnarmistök liðsins og skoraði þriðja mark Blika.

Seinni hálfleikur hófst með miklum ákafa Keflavíkurliðsins sem sóttu grimmt að marki Blika og var greinilegt að liðið ætlaði að selja sig dýrt. Keflavík uppskar mark á 57. mínútu þegar Nína Ósk Kristinsdóttir fékk góða sendingu inn fyrir vörn Blika og skoraði með góðu skoti í færhornið framhjá lansliðsmarkverði Íslands, Þóru Helgadóttur. Keflavík fékk nokkur ágætisfæri til að bæta við marki, m.a. björguðu Blikar á marklínu eftir þunga sókn Keflavíkur. En svo fór sem fór og sigraði Breiðablik með 1-3.

Það hefði verið gaman að sjá Keflavíkurliðið taka meiri áhættu í seinni hálfleik þar sem Blikar voru komnir niður á hælana. En engu að síður er margt í leik Keflavíkur sem er mjög jákvætt, er sérstaklega gaman að sjá hversu ferskir Skotarnir okkar Donna, Karen og Linda koma inn í leik liðsins.

Næsti leikur er n.k. þriðjudag þegar liðið sækir KR heim, en KR liðið hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum. En ef Keflavík mætir með baráttuna og viljann í lagi þá er allt hægt.

Lið Keflavíkur:
Þóra Reyn, Inga Lára, Linda O'Donnell, Donna Cheyne, Ólöf Helga (Thelma Dögg 58.), Guðný Petrína, Lilja Íris, Karen Penglase, Danka Podovac, Nína Ósk og Vesna Smiljovic.
Varamenn Keflavíkur: Anna Rún, Karen Sævars, Birna Marin, Eva Kristins, Elisabet Ester, Hrefna Magnea

ÞÞ

 

 
Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði mark Keflavíkur.