Fréttir

Þór - Keflavík á laugardag kl. 15:00
Knattspyrna | 22. mars 2013

Þór - Keflavík á laugardag kl. 15:00

Næsti leikur Keflavíkur í Lengjubikarnum verður gegn Þór á Akureyri laugardaginn 23. mars.  Leikurinn verður í knattspyrnuhúsinu Boganum og hefst kl. 15:00.  Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Sverrir Gunnar Pálmason og Stefán Aðalsteinsson, eftirlitsmaður KSÍ er Magnús Sigurður Sigurólason.

Fyrir leikinn er Keflavík í 5. sæti riðilsins með fimm stig eftir einn sigur, tvö jafntefli og eitt tap í fyrstu fjórum leikjunum.  Þór kemur þar á eftir með fjögur stig.