Fréttir

Knattspyrna | 15. nóvember 2010

Þór kveður

Þór Hinriksson, aðstoðarþjálfari karlaliðsins okkar, hefur ákveðið að taka sér frí frá knattspynuþjálfun í bili.  Við þökkum Þór kærlega fyrir hans góðu störf hjá Keflavík og vonumst til að sjá hann aftur sem fyrst í boltanum. 

Hér fylgir stutt kveðja frá Þór.


Ágætu Keflvíkingar.

Ég hef þjálfað linnulaust í ein 16 ár og fann ekki alveg neistann í byrjun nýs æfingatímabils. Ég óskaði eftir því við Willum að ég vildi hætta og tók hann við beiðni minni af skilningi og kann ég honum bestu þakkir fyrir það. Ég vil þakka þeim sem að málum koma hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur, leikmönnum og stjórn sem og stuðningsmönnum fyrir frábært samstarf. Nálægðin er mikil og góð og þar starfar einvala lið sem ég hef vart áður kynnst.
Góðar stundir.

Kveðja.
Þór Hinriks