Fréttir

Knattspyrna | 21. maí 2006

Þórólfur Þorsteinsson búningatæknir.....

Það er alltaf einhver sem er ómissandi hjá hvaða knattspyrnuliði sem er. Erum við að tala um leikmenn, þjálfara, liðstjórn, leikmannaráð, stjórnarmenn eða stuðningsmanninn.  Auðvitað erum við öll ómissandi þegar liðið okkar á í hlut. En það er einn sem sker sig úr þessum hóp og það er Þórólfur Þorsteinsson sem sér um búningamál leikmanna Keflavíkurliðsins og sér um að leikmennirnir séu vel til fara á leikvellinum hvort sem er í upphitun eða inná leikvellinum. Fyrir alla leiki er Dói eins og hann er kallaður búinn að raða þessu upp í búningsherberginu okkar ( sokkar, stuttbuxur, treyjur, utan yfir gallar og allt í réttri stærð....sumir búnir að lyfta mikið og þurfa aðra stærð í tíma og ótíma, handklæði)  fyrir leikmenn liðsins á snaga fyrir hvern leikmann fyrir sig.

 

Leikmenn treysta Dóa og hann er leikmannanna.

 

Í útileikjum (æfingaferðum) sér hann um þvott fyrir leikmennina.  Ég veit fyrir víst að Dói er ómissandi fyrir leikmenninna og þeir eru vitandi um það og þeir bera mikla virðingu fyrir Dóa fyrir hans störf fyrir félagið.

 

Dói þú ert flottur.............

 

jöa