Þorrablótið er 12. janúar - Miðasala í fullum gangi
Þorrablót Keflavíkur verður haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut þann 12. janúar. Það eru Knattspyrnu- og Körfuknattleiksdeildirnar sem standa sameiginlega að þorrablótinu. Miðasala er þegar hafin og gengur vel enda var blótið í fyrravetur einstaklega vel heppnað.
Til að nálgast miða og/eða til að bóka miða og borð fyrir hópa má hafa samband við Guðmund Steinarsson í síma 899-4636 eða á netfangið gummi9@simnet.is eða Sævar Sævarsson í síma 869-1926 eða á saevar@keflavik.is.
Dagskrá:
Veislustjóri: Jón Björn Ólafsson en hann sló svo rækilega í gegn í fyrra að ekki þótti annað hægt en að gefa honum sviðið á nýjan leik.
Rúna Júll syrpa með Memfismafíunni: Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson munu leiða Memfismafíuna í Rúna Júl syrpu sem frumflutt verður á Þorrablóti Keflavíkur og enginn ætti missa af.
Keflavíkurannáll: Þetta árið verður annállinn fluttur á videóformi en stiklað verður á stóru í bæjar- og íþróttalífi Keflavíkur fyrir árið 2012 með beittum og kómískum hætti.
Baggalútur: Hin þjóðþekkta hljómsveit Baggalútur mun taka við keflinu að borðhaldi loknu og spila sín vinsælustu lög.
Alli "diskó": Kvöldið mun svo enda með alvöru 80´s skífuþeytingum að hætti Alla "diskó" í bland við þekkt 90´s lög og íslenskar perlur.
Þorrablótið Keflavíkur 2012 þótti frábær skemmtun en 2013 mun slá því við! Ljóst er að færri munu komast að en vilja því ráðlagt að þú bíðir ekki boðanna og tryggir þér miða!
Myndin með fréttinni er fengin að láni frá Víkurfréttum.