Þrenna hjá Sveindísi gegn ÍBV
Keflavíkurstelpur sigruðu Pepsi deildar lið ÍBV 3 - 2 í æfingaleik sem fram fór í Reykjaneshöll á föstudagskvöld.
ÍBV komst í 0 - 1 á 9 mín. Sveindís Jane jafnaði metin með langskoti á 27 mín. Eyjastúlkur komust aftur yfir á 33 mín. og voru yfir 1 - 2 í hálfleik. Það var síðan ekki fyrr en á 81 mín. að Sveindís Jane jafnaði metin og aftur með langskoti. Aðeins 3 mínútum síðar kórónaði Sveindís stórleik sinn, þegar hún skoraði sigurmarkið eftir einleik frá miðjum vellinum og lagði boltann framhjá úthlaupandi markverði ÍBV.
Næsti leikur hjá stelpunum er æfingaleikur gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar, leikurinn fer fram í Reykjaneshöll laugardaginn 4. febrúar kl. 14:15.
Liðið gegn ÍBV: Anna Rún (m), Arndís Snjólaug (Sigurbjörg), Kristrún Ýr (Ólöf), Þóra Kristín, Íris Una, Ljiridona (Birgitta), Jóney Ósk (Björk Lind), Brynja, Eva Lind (Katla María), Sólveig Lind (Margrét), Sveindis Jane.
Sveindís Jane Jónsdóttir gerði þrennu gegn ÍBV.